Hér má lesa rugl eftir mig

05 desember 2009

Ungir folar og fleira gott

sæl á ný

Langaði eiginlega bara að smella hérna inn einu litlu myndbandi af hrossum. Við ofurskutlurnar (ég, Birta og Helga) skruppum nefnilega á Snæfellsnesið á ungfolasýningu í gær. Þar var alveg slatti af efnilegum folum og mér að óvörum, Sparisjóður frá Hallkelsstaðahlíð sem ég hélt undir í sumar (því ég vann tollinn í happdrætti) en hafði ekki séð áður.

video

Annars hefur fátt gerst. Kennslan er búin í bili, ábara eftir að fara yfir nokkur verkefni og klára að semja próf. Prófið verður svo 14. des svo ég sé fram á að hafa tíma til að skrifa jólakort og taka til og þannig leiðinda vesen.

Orð dagsins; bölti
Orðið þýðir; hjalli, barð, hóll, þúst.
Unnsteinn hnaut um bölta. Stóð þar bær á bölta nokkrum.

3 Comments:

Anonymous Lilja said...

Vá - þetta var sennilega leiðinlegasta myndband sem ég hef séð....;)

15:01

 
Blogger Mæja said...

já það sennilega rétt - en ég mun reyna að bæta mig næst

12:20

 
Anonymous Lilja said...

Hlakka til!

23:33

 

Sendu inn athugasemd

Subscribe to Post Comments [Atom]

<< Heim