Hér má lesa rugl eftir mig

29 janúar 2010

Janúar að klárast

Jæja, nú er janúar alveg að klárast.

Þetta er nú búinn að vera meiri mánuðurinn - nýtt ár, engin icesave-lög, hellingur af handbolta, rúv í enn hraðari niðurleið en áður, húsleit hjá Íslandspósti (aldrei að treysta póstinum) og ég veit ekki hvað og hvað - já og J. D. Salinger er dauður - hvar endar þetta eiginlega?.... vonandi í febrúar.

Jamm og já.
Ég skellti mér á vinnuvélanámskeið í vikunni. Þrír unaðsdagar á Flúðum með gistingu hjá föður mínum. Bráðum get ég þá löglega ekið dráttarvél - þ.e.a.s. þegar ég verð búin að taka verklegt próf. Jess.

Handboltakarlarnir okkar eru aðeins búnir að skána í áliti með árangri sínum þarna úti í útlöndum - jafntefli eru samt ekkert töff að mínu mati. Jamm og já...

Þorrablótið í Tungunum var á föstudaginn var (Bóndadag). Þar var glaumur og gleði og læt ég hér myndir lýsa stemmingunni fram að þeim tíma sem ég fór heim (eftir að hafa gert þessa klassísku hluti, drukkið ótæpilega og gubbað).

Helga María (26) og Sævar (44) í góðu stuði

Hinn bitri sannleikur. Mæðgurnar Sigga (45) og Mæja (24) í hörkupósu

Hallgrímur (Rosagamall) og Þrúða (eitthvað yngri) sátu til borðs með okkur

Skemmtiatriði í anda kvenfélagisins. Maðurinn með víkingahjálminn er í hlutverki Rúnars Björns (21).

Sævar (44) og Trausti (27) voru heitustu gaurarnir að mati Siggu Jóns (45)

Óþekkt kvensa og Ívar Sæland (26) helltu rækilega í sig í tilefni dagsins

Tinna Jóns (26) og Birkir Kúld (25) rokkuðu á hinni svokölluðu vesturhlið (west-side)

Svona var svo stemmarinn daginn eftir. Helga (26) og Sigga Jóns (45) eins og sólargeislar

Jájá... þetta var nú skemmtileg sýning - þessar myndir og fleiri á myndasíðunni. Næst á dagskrá hjá mér sjálfri æsispennandi járninganámskeið núna um helgina og vonast ég til að geta lært margt og mikið af Lunddælska járningasnillingnum Sigurði Oddi.

yfir og út

Orð dagsins; síðkyssinn (lo)
orðið þýðir; seinn til kossa
Dæmi; ekki var Helga síðkyssin er hún hafði króað draumaprinsinn af.

3 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

skemmtilegt þetta séð&heyrt yfirbragð með því að tilgreina aldur hvers og eins
kveðja Birta (24)

18:02

 
Blogger Mæja sagði...

Já finnst þér ekki? Mamma vildi endilega að þetta kæmi fram - sennilega svo að það væri á hreinu hvor væri hvað á myndinni af okkur mæðgum.

19:15

 
Blogger Unknown sagði...

Sú óþekkta við hlið Ívars Sæland, heitir Elísa. Hún er ættuð frá Helgastöðum og er 22 ára.

11:40

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim