Hér má lesa rugl eftir mig

26 mars 2010

Það blanda allir landa....

Góða kvöldið

Nú hefur aldeilis margt á dagana drifið. Bæði svona almennt og í mínu bráðspenanndi lífi. Ég segi stuttlega frá þessu.

Um síðustu hegi fór ég á heimaslóðir mínar til að aðstoða föður minn við mjaltir og bræður mína við gegningar. Það var alveg hreint ágætt, gerði ýmislegt hressandi eins og að moka skít og járna. Skrapp líka með bræður mína á opin dag á Stóra-Ármóti sem var ágætt.

Hinir eldspræku Magnús B. Jónsson landsráðunautur í nautgriparækt og Guðmundur Jóhannesson ráðunautur á Búnaðarsambandi Suðurlands létu sig sko ekki vanta á Stóra-Ármót

Merin hans Mads hún Freyja sést hér í árásarham

Þegar ég skildi við í síðasta bloggi var ég búin að vera að plana að fá hingað hross. Þau eru komin núna og það er mjög ánægjuleg. Pjakkur er að vísu ekki jafn sáttu við þetta allt, í það minnsta var hann með allra latasta móti í gær þegar ég fór á bak. Meri sótti ég svo í Arnþórsholt í gær og fékk með henni fylgdi spáný klipping og poki af fóðurbæti - ekki amalegt það. Mér sýnist það nú vera ágætisgrey en það á að vísu eftir að koma betur í ljós.



Kláraði svo að kenna staðarnemum í fóðurverkun í síðustu viku og var með próf í áfanganum núna á miðvikudaginn og fór það vel. Skríllinn sá heldur svo í verknám eftir páskana og sjást líklega ekki á Hvanneyri fyrr ein einhvern tíma í júní. Kennslu er þó ekki alveg lokið því það eru 18 stykki fjarnemar sem á eftir að klára að kenna. Besta mál.

En kennslutengt. Fór í dag í ferðaleg með sauðfjárrækt 2 (bændadeild 2) á Strandir að skoða sauðfjárbú. Fórum í heimsók í Húsavík, á Heydalsá og að Smáhömrum. Ég tók að mér að keyra í þessu ferðalagi, aðallega vegna þess að bíllinn minn er stór og rúmgóður og mér þykir gaman að keyra. Ég og mínir hressu ferðafélagar, Rúnar og Geir (+Stefán á norðurleið en Jóhann á suðurleið) ákváðum að fara dálítinn hring og keyra Arnkötludal heim. Það var alveg ágætt nema þegar við vorum rétt komin yfir hæsta punkt var trailer þversum á veginum og þurftum við því að bíða nokkra stund. Þrátt fyrir biðina náðum við á Hvanneyri á undan þeim sem fóru Hrútafjörð og Holtavörðuheiði.

Þessar krúttlegu gimbrar höfðu það notalegt í nýjum fjárhúsum á Heydalsá

Það greip mig svo gífurlegur dugnaður í gær í kjölfar áskorunar frá ástmanni mínum. Ég smellti í kleinur. Af góðmennsku buðum við svo Eygló Óskarsdóttur vínsala og nágranna okkar yfir í kaffi og kleinur og varð úr því hið ágætasta kvöld.

Sjáiði bara hvað ég er dugleg

Látum þetta gott heita í bili.

Orðdagsins; frugg
orðið þýðir; lélegt gras, myglað hey eða éljahreytingur.
Dæmi; Strandarollurnar fengu ekkert frugg. Örlítið frugg var á Arnkötludal.

ps. fleiri myndir á leið á myndasíðuna

5 Ummæli:

Anonymous Gunnfríður sagði...

Je minn hvað þú ert nú alltaf myndarleg Mæja! En ertu ekkert að grínast með útganginn á aumingja merinni. Þetta jaðrar við dýranýð!!!!!!

22:51

 
Blogger Mæja sagði...

Ertu ekki bara öfundsjúk Gunnfríður? Ég er alveg viss um að hann Dúddi getur klippt fyrir þig ef þig langar að líta vel út á Skeifudaginn...

10:38

 
Anonymous Ragnheiður sagði...

Lítið á björtu hliðarnar! Merin sér þó alla vega almennilega út og Mæja flækir sig ekki í faxinu þegar hún fer að þeysast á henni um koppa og grundir.

10:44

 
Anonymous Gunnfríður sagði...

Það er nú reyndar komin tími á að ég þurfi að láta snyrta faxið mitt. Kannski væri sniðugt að ég fengi manninn í að græja mig, Litla Rauð og Stóra Brún öll í stíl. :-)

18:08

 
Anonymous Nafnlaus sagði...

"Kutaklipping" klikkar ekki ....:+)
Kveðja frá Noregi, HB.

11:05

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim