Hér má lesa rugl eftir mig

19 september 2007

Fátt er svo með öllu illt....

Jæja... Sæl veriði

Langt síðan síðast og mikið að gera.
Það er reyndar allt of mikið að gera... ritgerðir, verkefni, verklegir tímar og einhver svona vitleysa sem ég hélt maður losnaði við á 3 ári í háskóla... en nei... greinilega ekki.

Skrópaði í skólanum í síðustu viku. Fór á fjall. Það var, tja, blautt, nema þegar snjóaði þá var kalt - semsagt einstaklega gaman.

Annars er bara ekkert að frétta sem mér þykir vert að segja frá að svo stöddu.

Orð dagsins: Trys
Orðið þýðir: verðlaus hlutur, glingur, drasl.
Dæmi: Mazdan hennar Birtu er nú hálfgert trys. Nýja hjólið hans Steingríms er sko ekkert trys.